Um Garðinn
Garður nær frá Rafnkelsstaðabergi að innanverðu og út á Skagatá þar sem gamli vitinn stendur. Í daglegu tali er honum skipt í Inn- og Út-Garð en milli þeirra er Gerðahverfið. Þar er allstór þéttbýliskjarni er tók að myndast skömmu eftir síðustu aldamót. Áður fyrr tilheyrði Garður Rosmhvalaneshreppi sem náði yfir allan ytri hluta Reykjanesskaga en 15. júní árið 1908 var Gerðahreppur stofnaður og Garðbúar fagna því hundrað ára afmæli byggðarlagsins árið 2008.
Elstu heimildir um Garðinn eða Reykjanes er að finna í Landnámu þar sem sagt er frá því að Ingólfur Arnarson hafi viljað gefa Steinunni frænku sinni Rosmhvalanes allt fyrir utan Hvassahraun. Steinunn vildi ekki þiggja gjöfina og bauð Ingólfi því kápu eða heklu flekkótta í skiptum fyrir landið. Í Landnámu er einnig sagt frá því að Steinunn gamla hafi lofað Gufa Ketilssyni að ávallt skyldi vera vermannstöð frá Hólmi. Frásögn þessi er elsta heimild um útræði frá Suðurnesjum og mun það hafa verið frá Hólmi í Leiru, landi Garðs.
Garðurinn dregur nafn sitt af fornum varnargarði sem liggur frá Útskálum að Kirkjubóli í Sandgerði. Talið er að bændur hafi hlaðið garðinn til þess að verja akra sína fyrir ágangi sauðfjár en kornyrkja var algeng á Reykjanesi á landnámsöld. Síðar nýttu menn garðinn sem vegvísi á milli Garðs og Sandgerðis. Enn má greina hluta af Skagagarðinum til móts við Útskálakirkju.
Mikil uppbygging á sér stað í Garði en íbúafjöldi er um 1500 manns. Nýlega var tekin skóflustunga að nýju hverfi þar sem gert er ráð fyrir um 195 íbúðum. Nánari upplýsingar um Klappa- og Teigahverfi er að finna hér.

Garðurinn er frábær staður til að njóta útivistar hvort sem um er að ræða gönguferðir, berjatýnslu í móunum, golf, sund eða nestisferð í skrúðgarðinn.
Skrúðgarðurinn Bræðraborg við Garðbraut er fallegur og litríkur og sannkallaður ævintýrastaður fyrir börn þar sem felustaðir og fjársjóðir leynast í hverju horni.
Garðskagi er sannkölluð náttúruperla en þar er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Útsýnið frá Garðskaga er einstakt og fuglalífið sérstaklega fjölbreytt.

Skólastarf er öflugt í Garði en grunnskólinn Gerðaskóli var settur í fyrsta sinn þann 7. október 1872 og er hann þriðji elsti skólinn á landinu sem starfað hefur óslitið frá stofnun. Leikskólinn Gefnarborg var stofnaður af Kvenfélaginu Gefn og tók til starfa 10. júní 1971. Unnið er að umhverfismálum í skólunum af miklum krafti og stefna Gerðaskóli og Gefnarborg að því að flagga Grænfánanum vorið 2008 á hundrað ára afmæli sveitarfélagsins.
Í Tónlistarskóla Garðs er unnið fjölbreytt starf og boðið upp á kennslu á hin ýmsu hljóðfæri.
Í Garði er einnig mjög gott tómstundastarf fyrir unga sem aldna en í Auðarstofu er aðstaða fyrir tómstundir eldri borgara og félagsmiðtöðin Eldingin er til húsa í Sæborgu.
Nokkur félagasamtök starfa í byggðinni s.s. Skátafélagið Heiðabúar, Kiwanisklúbburinn Hof, Lionsklúbburinn Garður, Söngsveitin Víkingarnir og Björgunarsveitin Ægir svo eitthvað sé nefnt.