Leita








100 ára afmæli Garðs

Sveitarfélagið Garður 100 ára

Þann 15. júní 2008 fagnaði Sveitarfélagið Garður 100 ára afmæli. Laugardaginn 14. júní voru opnaðar sýningar víðs vegar um bæinn og síðan á sjálfan afmælisdaginn, þann 15. júní kl. 14:00, var hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni í Garði. Afmælisdagurinn var hátíðlegur og vel heppnaður í alla staði en fjöldi Garðbúa og gesta nutu listsýninga og hátíðardagskrár. Skoðið skemmtilegar myndir frá afmælisdeginum og opnun listsýninganna með því að smella hér.  

Dagskrá 100 ára afmælis má nálgast hér.

 

Afmælisviðburðir:
Sveitarfélagið Garður fagnaði 100 ára afmælinu með sérstökum viðburði í hverjum mánuði. Hægt er að skoða fréttir af viðburðunum með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.


27. janúar kl. 14:00  
Barnaleikritið
Landið vifra eftir Þórarinn Eldjárn í Samkomuhúsinu.

14. febrúar kl. 20:00 
Sagnakvöld á flösinni.

9. mars kl. 20:00  
Garðveisla í Gerðaskóla, söngur og gamanmál.

Í apríl  
Ljósmyndasamkeppni Garðs.

31. maí 
Vorhátíð Gerðaskóla og Gefnarborgar.

14. júní 
Listsýningar opnaðar víða um bæinn.

15. júní kl. 9:00
Messa að Útskálum

15. júní kl. 10:00
Hátíðarbæjarstjórnarfundur og afhjúpun lágmynda af heiðursborgurum Garðs.

15. júní kl. 11:00 
Listaverkið Skynjun afhjúpað við innkomu í bæinn.

15. júní kl. 14:00 
Hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni. 

27. – 29. júní 
Sólseturshátíð á Garðskaga.

21. ágúst kl. 20:00
Rokktónleikar með hljómsveitinni Jeff Who?  Tónleikunum var frestað.

18. september kl. 20:00 
Sagnakvöld á Flösinni.

25. september kl. 20:00 
Ungir tónlistarmenn úr Garði halda tónlistarkvöld.

17. – 19. október 
Sýning og kynning fyrirtækja, stofnana og einstaklinga  í Garðinum á starfsemi sinni í Íþróttamiðstöðinni.

21. nóvember kl. 13-17
Fræðsla gegn fordómum, málþing í samkomuhúsinu

22. nóvember kl. 14:00 
Þjóðahátíð í Samkomuhúsinu.

7. desember 
Samvera og skemmtun á aðventu.

Í desember
Frumsýning kvikmyndarinnar Undir ljósi Garðskagavita, eftir Guðmund Magnússon. 

Á afmælisárinu voru lágmyndir gerðar af heiðursborgurum Garðs og settar upp á bæjarskrifstofu. 

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta