Leita








Fundargerðir

75. fundur 3. mars 2010

FUNDARGERÐ
75. fundur
Sveitarfélagsins Garðs


Fundur haldinn í bæjarstjórn Garðs, miðvikudaginn 3.mars  í fundarsal Bæjarskrifstofu Garðs, Sunnubraut 4. 

Mætt eru: Laufey Erlendsdóttir,forseti bæjarstjórnar, Oddný Harðardóttir, Þorbjörg Bergsdóttir, Brynja Kristjánsdóttir, Einar Jón Pálsson, Ágústa Ásgeirsdóttir, Ingimundur Þ.Guðnason og Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri

Halla Þórhallsdóttir ritar fundargerð.
 
Forseti bæjarstjórnar setti fundinn kl. 17:30

1. mál Þriggja ára áætlun – síðari umræða

 Greinargerð bæjarstjóra:
Í þriggja ára áætlun er gert ráð fyrir því að sjáist fyrir endan á óvissu í atvinnumálum og uppbyggingu atvinnutækifæra á Suðurnesjum.
Gert er ráð fyrir tekjum af  uppbyggingu Álvers í Garði og skatttekjur aukist um 70 millj. kr. á ári vegna aukinna umsvifa í tengslum við uppbygginguna.  Þá er gert ráð fyrir 1,5% íbúafjölgun.
Gert er ráð fyrir lækkun jöfnunarsjóðsframlaga vegna aukningar á öðrum skatttekjum.
Almennar hækkanir annarra tekna eru áætlaðar 2% á ári.
Kostnaðarhækkanir eru áætlaðar á tímabilinu um 2% á ári.Gert er ráð fyrir aukningu við kostnað á leikskóla á árinu 2013 vegna fjölgunar deilda í leikskólanum.
Annar rekstrarkostnaður dregst saman á milli áranna 2010 og 2011 vegna styrks til Útskálasóknar á árinu 2010.
Afskriftir eru áætlaðar í samræmi við viðkomandi fjárfestingar.
Raunvextir Framtíðarsjóðs eru áætlaðir um 4,5%  eða  u.þ.b. 62 milljónir á ári.
Vaxtagjöld vegna langtímaskulda eru áætluð í samræmi við lánasamninga í árslok 2009.

Fjárfestingar ársins 2011 eru að fjárhæð 79,9 millj. kr. og greinast þannig:
Leikskóli stækkun – uppsteypa 5. og 6. deild   10,0 millj.
Íþróttahús – hönnun 2. hæð        8,0 millj.
Grunnskóli – flutningur tónslistarskóla    27,0 millj.
Gatnagerð – hringtorg við skóla     17,0 millj.
Sæborg – bílaplan         5,9 millj.
Gatnagerð – ýmis verkefni        7,0 millj.
Hjóla- og göngustígar – ýmis verkefni      5,0 millj.

Fjárfestingar ársins 2012 eru að fjárhæð 77,0 millj. kr. og greinast þannig:
Leikskóli stækkun – 5. deild kláruð     50,0 millj.
Íþróttahús – 2. hæð       14,0 millj.
Gatnagerð – ýmis verkefni        7,0 millj.
Hjóla- og göngustígar – ýmis verkefni      6,0 millj.

Fjárfestingar ársins 2013 eru að fjárhæð 71,5 millj. kr. og greinast þannig:
Leikskóli stækkun – 6. deild kláruð     40,0 millj.
Gatnagerð – Iðngarðar og Ártún     24,5 millj.
Gatnagerð – ýmis verkefni        7,0 millj.

Gert er ráð fyrir að aðhaldi sé gætt í rekstri sem áður, vörður verði staðinn um grunnþjónustu við íbúa og jafnframt verði mögulegt að viðhalda sérstakri viðbótarþjónustu við foreldra ungra barna.

Þriggja ára áætlun 2011-2013 samþykkt með 4 atkvæðum N-lista.

2. mál Fundargerð 124. fundar bæjarráðs frá 24. febrúar 2010

Samþykkt samhljóða

3. mál Fundargerð 32. fundar Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum

Lögð fram

4. mál Ósk um ferðastyrk vegna námsferðar.
Laufey Erlendsdóttir og Einar Jón Pálsson sitja hjá við afgreiðslu á þessum lið vegna vanhæfis.
 Óskað er eftir ferðastyrk að upphæð 20.000.- kr. á hvern þátttakanda í ferðinni, sem eru alls 24. Tilgangur ferðarinnar er að kynnast útikennslu og fjölbreytni og nýbreytni í skólastarfi í Danmörku dagana 5. – 9. júní 2010.
Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að styrkja hvern kennara um 20.000.- kr. eða alls kr. 480.000.- og verður fjárhæðin tekin af liðnum  04211 – 4923 Námskeið og skólagjöld.
Samþykkt með 5 atkvæðum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.18:10



Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta