Skólastefna Garðs
Skólastefna Sveitarfélagsins Garðs hefur verið sett til ársins 2010. Gerð stefnunnar hófst á skólaþingi sem skólanefnd bæjarins stóð fyrir þann 26. apríl 2007. Þar störfuðu fjórir hópar eftir innlögn frá Ólafi Jóhannssyni aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands og hugstormun úr sal. Gengið var út frá hugmyndum þinggesta um það hvernig þeir vildu sjá skóla- og æskulýðsstarf vorið 2010.
Hóparnir unnu áfram við gerð stefnunnar á nokkrum fundum til viðbótar og að lokum var stefnan send til skólanna og æskulýðsnefndar til yfirferðar og athugasemda. Stefnan var samþykkt í skólanefnd 24. janúar 2008 og í bæjarstjórn 6. febrúar.
Hópstjórar voru:
Oddný Harðardóttir, grunnskóli.
Laufey Erlendsdóttir, leikskóli.
Ágústa Ásgeirsdóttir, tónlistarskóli.
Jónína Magnúsdóttir, æskulýðsstarf.
Öll börn búa yfir styrkleikum sem eiga að fá að njóta sín í skóla- og æskulýðsstarfi. Skólarnir munu nú setja áhersluatriði skólastefnunnar í starfsáætlanir sínar. Meta þarf reglulega hvort skólar og skipuleggjendur æskulýðsstarfs bæjarins hafi náð að vinna að stefnunni og grípa til viðeigandi umbótaðgerða ef nauðsyn krefur.
Skoðaðu skólastefnu Garðs með því að smella á tenglana:
Skólastefna-Innsíða
Skólastefna-Útsíða
