Atvinnumálafundurinn sem haldinn var í Garðinum í gær var fjölmennur, nýi salurinn í Gerðaskóla var þéttsetinn enda brenna atvinnumálin á Suðurnesjamönnum. Markmið fundarins var að leitast við að skýra stöðuna á vinnumarkaði og sjá hvert við stefnum. Mikil þörf er á að allir taki höndum saman og myndi breiða samstöðu stjórnvalda, atvinnulífs og sveitarfélaga í landinu til að koma hjólum atvinnulífsins af stað.
Frummælendur komu frá Alþingi, atvinnulífinu, ASÍ og Samtökum atvinnulífsins. Umræður voru einarðar og góðar og voru menn nokkuð bjartsýnni eftir fundinn, ekki síst eftir ummæli Ágústs Hafberg frá Norðuráli en hann sagði að þeir væru tilbúnir að byrja, jafnvel eftir mánuð. Ekki veitir af fréttum sem þessum eins og útlitið er núna og staðan þröng hjá mörgum.
Myndir af www.vf.is
