Leita








Fréttir

2. mars 2010
Snúum bökum saman

Fundur um stöðuna á vinnumarkaði verður haldinn á sal í Gerðaskóla í Garði fimmtudaginn 4. mars kl. 17:15. Á fundinum verður staðan á vinnumarkaði skýrð, hvar við stöndum, hvert við stefnum. Fundarboðendur vilja stíga fram og hefja viðræður um atvinnumál út fyrir ramma pólitískrar umræðu og leita eftir breiðri samstöðu stjórnvalda, atvinnulífs og sveitarfélaga í landinu til að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Það er aldrei mikilvægara en núna að við stöndum saman. Það er ögurstund fyrir okkur að snúa baki við svartnætti liðinna mánaða og trúa því að nýjar fréttir gefi okkur tilefni til bjartsýni. Að við tökum við von og birtu vorsins sem leiðir okkur til bjartari tíma og hjól atvinnu- og efnahagslífs byrji að snúast fyrir alvöru.Þaðer eina leiðin fyrir endurreisn heimila og fjölskyldna.

Hér á Suðurnesjum er atvinnuleysi mikið og tækifærin bíða en aðeins ef við náum að stand saman og hagsmundir fjölskyldna og atvinnulífs teknir fram fyrir pólitískan hanaslag. Við hefjum það verk hér í Garði á fimmtudag og skorum á fólk til að fjölmenna og sína samstöðu.

Við hvetjum fólk sem leitar atvinnutækifæra, fólk sem vill fá svör við spurningum sínum um atvinnuhorfur í náinni framtíð og aðra þá sem láta atvinnumál sig varða að snúa saman bökum og mæta á fundinn.

Frummælendur verða Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Grímur Sæmundsen varaformaður Samtaka Atvinnulífsins og forstjóri Bláa lónsins, Gylfi Arnbjörnsson forseti ASI, Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta Norðuráls, Aðalheiður Héðinsdóttir framkvæmdastjóri Kaffitárs, Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingismaður og Oddný G. Harðardóttir alþingismaður. Að loknum stuttum framsöguerindum verða pallborðsumræður þar sem frummælendur svara fyrirspurnum fundarmanna.

 

Ásmundur Friðriksson

bæjarstjóri í Garði



Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta