Fuglaskoðun og fuglalíf
Garðskagi er ysti hluti ness, sem kallað er Rosmhvalanes, en Rosmhvalur er gamalt rostungsheiti. Rosmhvalanes er nesið norðan Ósa í vestri og Njarðvíkur í austri. Þetta er hluti Suðurnesja og oft nefnt „táin“ á Reykjanesskaga.
Garðskagi er rómaður fyrir fjölbreytt fuglalíf árið um kring. Lega skagans og fjölbreytt búsvæði gera hann að einum besta fuglaskoðunarstað landsins og er Garðskagi þekktur meðal fuglaskoðara víða um heim. Aðrar fjörur í Garði ásamt síkjunum þremur: Útskálasíki, Miðhúsasíki og Gerðasíki, laða að sér fjölbreytt fuglalíf á öllum árstímum, en síkin leggur þó venjulega yfir háveturinn.
Nærri 200 tegundir fugla hafa sést í Garði, sumir þeirra aðeins einu sinni, en margir oftar. Ekki er hægt að gera öllum fuglum skil hér, en fjallað um algengustu fugla eða algenga fulltrúa ákveðinna ætta eða ættkvísla.
Smelltu hér til að lesa um hvernig fuglum á og við Garðsskaga má skipta í nokkra flokka
Þú færð nánari upplýsingar um fuglana með því að smella á myndirnar: