Byggðasafn Garðskaga
Byggðasafnið er staðsett að Skagabraut 100 við Garðskagavita. Safnið var fyrst opnað almenningi 26. nóvember árið 1995.
Sumaropnun:
1. apríl til 31. október. Alla daga kl. 13-17.
Vetraropnun:
Opnað fyrir hópa samkvæmt samkomulagi
við safnstjóra í síma 894 2135 eða með
tölvupósti: gardskagi@simnet.is
Byggðasafnið á Garðskaga var fyrst opnað almenningi þann 26. nóvember 1995 í gömlum útihúsum á Garðskaga. Á tíu ára afmæli safnsins var tekið í notkun nýtt 700 fermetra safnahús með kaffiteríu á efri hæð. Margt merkilegra muna úr byggðasögu Garðsins er á safninu. Má þar nefna yfir 100 ára trérennibekk,heimasmíðað ferðaorgel sem jafnframt er yfir 100 ára, sexæring með Engeyjarlagi sem byggður var árið 1887 og marga aðra merkilega muni. Það sem gerir safnið á Garðskaga einstakt er vélasafn Guðna Ingimundarsonar. Yfir 60 vélar af ýmsum gerðum, sem nær allar eru gangfærar. Sú elsta er Sandia glóðarhausvél frá árinu 1920.
Safnið hefur til sýnis ýmsa muni sem tengdust búskaparháttum til sjós og lands, elstu munirnir eru orðnir yfir eitt hundrað ára gamlir. Stór hluti af safninu eru sjóminjar, það er ýmsir hlutir sem notaðir voru við fiskveiðar og til verkunnar á fiski í landi. Á safninu er áttæringur með Sunnlensku lagi smíðaður árið 1913, hefðbundinn trillubátur frá árinu 1932 með upphaflegu vélinni, níu metra langur bátur með Engeyjarlagi smíðaður árið 1887, þá eru fjórir aðrir bátar á safninu.
Einstakt vélasafn er til sýnis vélarnar eru sextíu talsins, þær eru allar uppgerðar af Guðna Ingimundarsyni í Garði, og eru flest allar gangfærar. Vélarnar eru af ýmsum gerðum, mest litlar bátavélar sú elsta frá árinu 1920 ein gufuvél er á safninu.
Á haustmánuðum 2004 hófust miklar framkvæmdir við safnið, þar sem hafist var handa við að byggja við safnahúsið. um er að ræða 700m2 byggingu sem er á tveimur hæðum að hluta, á efri hæð er veitingasalur sem tekur 50 manns í sæti, þar er mjög gott útsýni yfir Faxaflóann, Snæfellsjökul, fjallahringinn umhverfis flóann og sólarlagið sem er einstakt á Garðskaga. Sýningarsalir safnsins stækka verulega við þessar breytingar og verða orðnir um 700 m2. Safnið getur nú boðið upp á aðstöðu fyrir ýmsar uppákomur eins og t.d. farandsýningar handverkafólks o.fl. Þá er veitingarsalurinn kjörinn fyrir ýmsar veislur og fundarhöld.
2. júlí 2005 varð svo vígsla Byggðarsafnsins á Garðskaga að viðstöddum rúmlega 100 boðsgestum. Sunnudaginn 3. júli var svo safnið opnað almenningi og verður safnið opið, eins og fyrr er getið, frá kl. 13:00 - 17:00. Þennan fyrsta dag komu rúmlega 200 gestir til að skoða safnið og flestir af þeim notuðu einnig tækifærið til að fá sér kaffi og meðlæti, enda opnaði Flösin-kaffitería á sama tíma. Flösin er opin frá kl. 13:00 0 24:00 alla daga.
Myndbrot úr Byggðasafninu:
Video: Bátarnir á byggðasafninu. (.wmv)
Video: Úr gamla safninu. (.wmv)
Video: Vélar á byggðasafninu. (.wmv)
Video: Nýtt safnahús byggt. (.wmv)
Video: Safnmunir fluttir á nýtt safn. (.wmv)
Video: Trukkurinn hans Guðna. (.wmv)
Kennsluefni tengt Byggðarsafninu:
Smelltu hér til að sækja safnkennsluefnið á pdf skali (
pdf - 994KB).