Leita












Forsíða

1. mars 2010
Snúum bökum saman, fundur um atvinnumál

Snúum bökum saman!

Fundur um atvinnumál haldinn á sal Gerðaskóla í Garði

fimmtudaginn 4. mars kl.17:15.

 

Á fundinum verður staðan á vinnumarkaði skýrð, hvar við stöndum, hvert við stefnum. Fundarboðendur vilja stíga fram og hefja viðræður um atvinnumál út fyrir ramma pólitískrar umræðu og leita eftir breiðri samstöðu stjórnvalda, atvinnulífs og sveitarfélaga í landinu til að koma hjólum atvinnulífsins af stað.

 

Við hvetjum fólk sem leitar atvinnutækifæra, fólk sem vill fá svör við spurningum sínum um atvinnuhorfur í náinni framtíð og aðra þá sem láta atvinnumál sig varða að snúa saman bökum og mæta á fundinn.

 

Dagskrá:

 

1.    Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.

2.    Grímur Sæmundsen varaformaður Samtaka atvinnulífsins og forstjóri Bláa lónsins

3.    Gylfi Arnbjörnsson forseti ASI

4.    Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta Norðuráls

5.    Aðalheiður Héðinsdóttir framkvæmdastjóri Kaffitárs

6.    Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingismaður

7.    Oddný G. Harðardóttir alþingismaður

 

Pallborðsumræður: Frummælendur svar fyrirspurnum fundarmanna.

 

Fundarstjóri Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri í Garði.

 

Fundarboðandi

Sveitarfélagið Garður.

 



Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta